Aðlögun lokið í Garðaseli

Í þessari viku komu 18 börn í aðlögun á yngstu deildina Lónið. Foreldrar þeirra voru með þeim og leiddu þau fyrstu skrefin sín og fengu um leið að upplifa dagskipulagið og öll þau verkefni sem þar eru svo mikilvæg í umönnun og daglegu lífi yngstu barnanna. Þrír strákar voru komnir inn á Holt og Vík og gekk sú aðlögun líka mjög vel.