Í dag var sett upp Bambagróðurhús sem leikskólinn fékk að gjöf frá Krónunni. Undanfarin ár hefur Krónan verið með samfélagsverkefni sem hefur falist í að gefa Bambagróðurhús til skóla. Foreldrafélag Garðasels sótti um styrkinn og í ár vorum við svo heppin að vera valin og foreldrafélagið fékk að gjöf þrefalt Bambahús.
Viktoría og Hafdís fóru sem fulltrúar foreldrafélagsins og tóku við Samfélagsstyrki Krónunnar í dag fyrir utan Krónuna en á meðan tókum við í leikskólanum á móti mönnum sem komu með húsið og sáu um uppsetningu. Í næstu viku ætlum við að opna húsið formlega og bjóða foreldrum að koma við hjá okkur síðdegis og skoða húsið. Nánari dagsetning verðu send út þegar veðurspá liggur fyrir.