Skráningardagar 18. og 21. september

Dagarnir 18. og 21. september eru fyrstu skráningardagar leikskólanna á Akranesi skólaárið 2024 til 2025. Alls er boðið upp á fjórtán skráningardaga og geta foreldrar ýmist valið að vera með börnin alla daga í leikskólanum, valið staka daga í frí eða tekið allt að tíu daga eða fleiri í frí og fá þá einn mánuð í afslátt af leikskólagjöldum. 

Margir foreldrar hafa valið að hafa börnin í fríi á skráningardögum og nýtir starfsfólk leikskólans dagana til þess að taka út styttingu vinnuvikunnar eða vinnustyttingu allt eftir því sem samningar segja til um.

Á skráningardögum sameinum við deildir og er það skemmtileg tilbreyting fyrir börn og starfsfólk.