Í gær hafði snjónum kyngt niður og það var mikil kátína og gleði í útivistinni og dugnaðurinn í börnunum var mikill. Þetta er veður sem börn elska og gleyma sér í leiknum.
Gott er að minna sig á hversu mikilvæg hreyfing og útivera er börnunum, þroska þeirra og vellíðan.
Hreyfing er vítamín sem eykur gleði í hjarta, súrefni í lungun og eflir styrk og þol.