01.11.2017
Nóvember er genginn í garð með fallegum degi eins og svo margir undanfarnir dagar. Við mánaðamót uppfærast gögn og hér fyrir neðan má nálgast þau. Foreldrar hafa fengið þau send í tölvupósti.
dagatal
fréttabréf
matseðill
30.10.2017
Í morgun fóru elstu börnin og opnuðu formlega ljósmyndasýninguna sína á Höfða með fjölda íbúa og gesta. Víkarar sungu nokkur lög og þáðu síðan veitingar í lokin. Móttökurnar sem börnin fá eru alltaf svo ...
19.10.2017
Í október er áhersla lögð á læsi í sinni fjölbreyttu mynd og unnið með það á öllum deildum. Verkefnin taka mið af aldri og þroska barnanna og eru fjölbreytt að vanda. Bókaormar eru á öllum deildum þar sem börnin koma með bók að heiman til að lesa....
17.10.2017
Leikskólum er skylt að vinna starfsáætlun fyrir hvert skólaár þar sem gerð er grein fyrir helstu upplýsingum um starfsemina, viðburði, endurmat, nýbreytni og þróun. Hér má nálgast Starfsáætlun 2017-2018 og hafa foreldraráðsfulltrúar lesið hana yfi...
17.10.2017
Síðastliðinn laugardag var Sunddagur í Bjarnalaug, upphitaðri og notalegri. Laugin var opin eftir hádegi fyrir Garðaselsbörnin og fjölskyldur þeirra. Hér má sjá myndir
12.10.2017
Lára Dóra Valdimarsdóttir verður í æfingakennslu í Garðaseli næstu 5 vikurnar þar sem hún ætlar að innleiða og vinna með slökun og hugleiðslu með börnum byggt á námsefni frá Hugarfrelsi. Lára Dóra og Helena Másdóttir hafa farið á námskeið og...
12.10.2017
Dagana 10. - 11. og 12. október er Haustskólinn sem er hluti af samstarfsverkefni leik- og grunnskóla með elstu börn leikskólans. Í stað reglulegra nemendaskipta yfir veturinn eru elstu börnin okkar nú þrjá daga í grunnskólanum sínum og 1. bekking...
12.10.2017
Á laugardaginn, 14. október kl: 13.00-14.30, er sunddagur í Bjarnalaug. Laugin er upphituð og opin fyrir Garðaselsbörnin og fjölskyldur þeirra
05.10.2017
Á fræðslufundi í gær var rætt um mikilvægi góðs og fjölbreytts orðaforða barna og hversu mikilvæg leikskólaárin eru fyrir málþroska þeirra. Bent var á Orðalista sem er unnin var til að skilgreina hvaða orð og hugtök börn ættu að hafa á ákveðnum al...