31.10.2016
Foreldraráð Garðasels fundaði þriðjudaginn 25. október þar sem farið var yfir ýmis málefni tengd starfsemi leikskólans. Fundargerðina má lesa hér.
25.10.2016
Hallbera Rún Þórðardóttir, nemi í leikskólakennarafræðum, er næstu tvær vikurnar í vettvangsnámi á Víkinni. Hafrún er leiðsagnarkennari Hallberu, sem mun taka þátt í starfi deildarinnar og vinna verkefni með börnunum
25.10.2016
Eldri árgangurinn á Vík (2011), tekur þátt í Vökudögum með ljósmyndasýningunni Það sem auga mitt sér. Sýningin verður sett upp á Höfða og blasir við þegar gengið er inn. Opnun sýningarinnar verður föstudaginn 28. október kl: 10.30.
20.10.2016
Í september var gerð stutt viðhorfskönnun meðal foreldra yngstu barnanna til að kanna ánægju þeirra með aðlögun barna sinna í ágúst. Alls svöruðu 17 foreldrar af 18 sem gerir um 95% svarhlutfall. Hér má nálgast niðurstöðurnar.
...
14.10.2016
Sunddagur sem áætlaður var laugardaginn 15. október frestast til laugardagsins 29. október kl: 13.00-14.30.
14.10.2016
Foreldrar og hinir fullorðnu í umhverfi barna hafa mikilvægu hlutverki að gegna þegar kemur að því að kenna börnum sínum góð samskipti og verða góðir félagar. Þannig tryggjum við að börnin muni sjálf eignast vini sem er eitt af því mikilvægast...
30.09.2016
Þegar nýr mánuður gengur í garð endurnýjast ýmis gögn og hér fyrir neðan má nálgast matseðil, fréttabréf og dagatal október. Foreldrar hafa þegar fengið gögnin send í tölvupósti.
matseðill
fréttabréf
dagatal
30.09.2016
Skólaheimsóknir elstu barnanna eru hafnar og eru þær á fimmtudögum kl: 10.00-11.30. Elsta árgangnum er skipt í fimm hópa og fer einn hópur í einu og 1. bekkingar koma til okkar í Garðasel á meðan. Börnin fá að takast á við fjölbreytt viðfangsefni ...
30.09.2016
Í dag hófst innleiðing á Vináttuverkefni Barnaheilla, sem er forvarnarverkefni gegn einelti. Hann Blær bangsi kom í fyrstu heimsóknina og talaði við börnin um nauðsyn þess að vera góðir vinir og félagar. Hann Blær kom með fulla tösku af litlum bön...
29.09.2016
Námsáætlun 2011-árgangsins á Vík fyrir september og október má nálgast hér.